Hvað er málið með þetta? Mér finnst allavega voða skrýtið hvað það er búið að poppa oft upp einhverjar skringilegar fréttir í kringum hann Aron Pálma. Og oftar en ekki með hann í broddi fylkingar sem eina heimildarmann eða viðtalanda. Nú get ég ekki neitað því að skrýtnari hlutir en Wesley Snipes á Vegamótum hafa gerst án þess að því fylgi forsíðufrétt en samt finnst mér einhver skringileg PR lykt af þessu.
Er þetta bara allt partur af auglýsingaherferð bókarinnar hans eða er hann bara orðinn svona súr og vanur að vera í fréttunum á Íslandi að hann finni hverja einustu leið til að koma sér í blöðin og kvöldfréttirnar? Fréttin um mann í Bandaríska sendiráðinu sem átti “supposedly” að vera að fylgjast með honum, en var svo ekkert hátt skrifaður og sendiráðið vildi engu svara. Reyndar má vera að þessi gaur hafi bara ætlað að spila sig stórt og vera “Maðurinn” í bænum en það breytir engu með að samt sem áður kom Aron Pálmi fram í fréttunum þar sem hann sagði sögu sína.
Nú finnst mér allt í lagi að það séu tekin fyrir svona mál, sérstklega þegar kemur að þekktum einstaklingum sem hafa lent í svona eins fáránlegum og harðsvífnum aðstæðum eins og Aron Pálmi. En ef svona ómerkisfréttir eru það sem koma skal, og allt merkilegt og ómerkilegt sem kemur fyrir í hans lífi skuli vera fréttnæmt þá verður hann fljótur að tapa trúverðugleika sínum. Ég meina, á ekki bara að ráða einhvern fréttaritarann til að blogga fyrir hann fyrst þau eru að þessu á annað borð?
Nýleg ummæli