Hmmm….Athyglisvert hvað einhver anonymous gaur getur gert fyrir traffíkina á bloggið mitt.
Einhver sem ég gæti ekki sagt ykkur hver væri til að bjarga mér frá hríðskotaárás sá sig knúinn til að setja tengil á Arons Pálma pælingarnar bæði hér sem og hér. Og niðurstöður láta ekki á sér standa. Úr rúmlega hundrað skoðunum í gær í tæplega þrjú hundruð í dag.
Athyglisvert nokk. Og ekki eitt komment?
Dregur Matador spil: ,,Það hefur verið tengt á þig af barnalandi. Lokaðu blogginu hið snarasta og bíddu í tvær umferðir áður en þú íhugar að stofna annað.”
Kannski full hart, en ég myndi alla vega fara í sturtu til að ná mesta sullinu af mér.
HAHA… þetta er nú meira ruglið!