Ónýtir linkar og annað rusl

Hehe, var búinn að vera með ónýta linka inn á bæði facebook og myspace accountana mína í alltof langan tíma. Gjörsamlega gleymdi að eyða þeim.

Nú hef ég verið facebook/myspace laus í tæplega mánuð og ég get ekki sagt að þetta hái mér neitt. Það er ekkert nema aukin afkost af öllu öðru sem ég vill gera sem og minni tilgangsleysi því maður eyðir ekki tímanum í að logga sig inn á þessar síður til þess eins að sjá þetta ekkert sem er að gerast þar.

Ég set kannski aftur svona upp áður en ég fer út, bara svona upp á stay-in-touch. Annars er þetta algjörlega að betrumbæta lífstílinn minn.

Talandi um rusl, hvernig stendur á því að ruslatunnan í eldhúsinu er alltaf full í hádeginu? Mér finnst þetta voða skrýtið fyrirbæri og kemur mér alltaf á óvart hversu mikið er nennt að troða ofan í hana áður en einhver nennir að taka og fara út með ruslið. Kannski fyllir hún sig bara sjálf til að pirra mig í hádeginu, hver veit? En á meðan stend ég gáttaður yfir þessari daglegu iðju minni á að fara út með ruslið.

1 Svörun to “Ónýtir linkar og annað rusl”


  1. 1 m janúar 18, 2008 klukkan 7:45 pm

    Takk Björgvin minn, þú gerir þá alla vega eitthvað heima hjá þér!!!!


Skildu eftir svar