By the way, nokkrir punktar.
- Nýja notendaviðmótið á WordPress er glatað. Það er allt of fancy, ég vil bara hafa það stílhreint og þægilegt
- Ég er alltaf á leiðinni að breyta útlitinu á þessari síðu. Kemur kannski von bráðar.
- Ég er alltaf að reyna að finna eitthvað að blogga um. Eins og þið kannski takið eftir þá er lítið um vatn í eyðimörkinni í augnablikinu.
- Það lagðist víst draugur á öxlina á mér. Ég er nett pirraður yfir því og vil helst að hann fari að koma sér sem fyrst. Eða þá að ég hafi sofið í hnút, sem er eiginlega ólíklegri kosturinn.
- Ég er að lifa “frugally” eða “án eyðslu” í augnablikinu því ég á einfaldlega engan pening. Sem er algerlega það leiðinlegasta sem ég hef gert í langan tíma. Mig hefur aldrei langað jafn mikið í bíó á ævinni.
- Maður lifandi hefur komið mér til bjargar undanfarna daga með því að bjóða manni upp á frábæran hádegismat sem klikkar sjaldan.

Nýleg ummæli